Eiturefni og hættuleg efni

Föstudaginn 19. apríl 2002, kl. 18:19:00 (7951)

2002-04-19 18:19:00# 127. lþ. 123.24 fundur 587. mál: #A eiturefni og hættuleg efni# (EES-reglur, ósoneyðandi efni) frv. 68/2002, Frsm. MS (flutningsræða)
[prenta uppsett í dálka] 123. fundur, 127. lþ.

[18:19]

Frsm. umhvn. (Magnús Stefánsson):

Herra forseti. Ég mæli fyrir nál. um frv. til laga um breytingu á lögum nr. 52/1988, um eiturefni og hættuleg efni, með síðari breytingum, frá umhvn.

Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund fulltrúa umhvrn. og Hollustuverndar og fékk auk þess skriflegar umsagnir frá nokkrum aðilum.

Frv. þetta er lagt fram vegna væntanlegrar innleiðingar reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins, nr. 2037/2000, um efni sem eyða ósonlaginu, ásamt breytingum á þeirri reglugerð nr. 2039/2000. Með hliðsjón af dómi Hæstaréttar frá 21. apríl 1999 í máli íslenska ríkisins gegn Vörukaupum ehf. og gagnsök þykir ljóst að gera þurfi breytingar á lögum nr. 52/1988 áður en framangreindar reglugerðir öðlast gildi hér á landi. Ákvæði reglugerðar EB nr. 2037/2000 munu koma strax til framkvæmda og því er ljóst að ekki er hægt að bíða með þessa breytingu þar til nefnd skipuð af umhverfisráðherra 13. júní 2000, sem vinnur að heildarendurskoðun laga nr. 52/1988, hefur lokið störfum sínum.

Nefndin tekur undir nauðsyn frv. en leggur jafnframt áherslu á að framangreind nefnd ljúki vinnu sinni svo fljótt sem kostur er. Leggur nefndin til að frv. verði samþykkt óbreytt.

Undir nefndarálit skrifa fulltrúar í umhvn., Magnús Stefánsson, Kristján Pálsson, Þórunn Sveinbjarnardóttir, Katrín Fjeldsted, Jóhann Ársælsson, Kolbrún Halldórsdóttir, Ásta Möller og ísólfur Gylfi Pálmason.