Niðurgreiðslur húshitunarkostnaðar

Laugardaginn 20. apríl 2002, kl. 12:40:42 (8012)

2002-04-20 12:40:42# 127. lþ. 124.38 fundur 640. mál: #A niðurgreiðslur húshitunarkostnaðar# (heildarlög) frv. 78/2002, Frsm. meiri hluta HjÁ (flutningsræða)
[prenta uppsett í dálka] 124. fundur, 127. lþ.

[12:40]

Frsm. meiri hluta iðnn. (Hjálmar Árnason):

Herra forseti. Ég mæli fyrir nál. meiri hluta iðnn. um frv. til laga um niðurgreiðslu húshitunarkostnaðar.

Nefndin fékk fjölmargar umsagnir og gesti á sinn fund og skoðaði þær umsagnir rækilega.

Frv. er ætlað að setja lagaramma um niðurgreiðslu húshitunarkostnaðar, en hún hefur verið tíðkuð hér á landi undanfarna tvo áratugi. Frá því að niðurgreiðslur hófust hefur um 10 milljörðum kr. verið ráðstafað til þeirra. Í frv. er lagt til að sú framkvæmd sem tíðkast hefur á niðurgreiðslum verði lögfest með skýrum hætti. Þó leggur nefndin til nokkrar breytingar á framkvæmdinni sem eru þær helstar að mögulegt verður að greiða niður hitun með olíu hjá þeim sem ekki eiga kost á annarri hitun, eigendur smávirkjana eiga kost á niðurgreiðslu á rafhitun, notkun varmadælna til að hita íbúðir verður gjaldgeng til niðurgreiðslu húshitunarkostnaðar, hitaveitur sem ekki eru opinberar veitur geta fengið styrk til stofnunar nýrrar veitu eða stækkunar eldri veitu, komið verður á opinberu eftirliti með framkvæmd aðgerðanna og settar verða skýrar reglur um það í hvaða tilvikum kyntar hitaveitur skuli njóta niðurgreiðslna.

Meiri hlutinn leggur til breytingu á frv. þess efnis að nýjum kafla verði bætt inn um orkusparnað --- eins og kom fram í 1. umr. höfðu margir hv. þm. hug á að taka slíkt ákvæði inn --- en nefndin telur vænlegustu leiðina til að draga úr kostnaði ríkissjóðs af jöfnun húshitunarkostnaðar vera þá að stuðla að og hvetja til sparnaðar í orkunotkun. Nefndin bendir á að svigrúm til orkusparnaðar er töluvert, svo sem bætt einangrun húsa og bætt stýring á húshitun til að bæta orkunýtni.

Breytingin sem iðnn. gerir hvað þetta ákvæði varðar er að verja skuli til orkusparnaðaraðgerða allt að 1% af því fé sem ákveðið er í fjárlögum til niðurgreiðslu á kostnaði við húshitun og til að styrkja nýjar hitaveitur.

Meiri hlutinn leggur jafnframt til breytingu á frv. þess efnis að ef orka frá virkjun fer ekki um kerfi dreifiveitu heldur beint til notanda, samanber smávirkjanir, skuli sú notkun vera mæld með löggiltum mæli og vinnsluaðili sjá um uppgjör niðurgreiðslu á sama hátt og dreifiveitur gera þegar orkan fer um kerfi þeirra.

Meiri hlutinn bendir einnig á að samkvæmt frv. er kostnaður við rafhitun íbúðarhúsnæðis sem ekki er á veitusvæði hitaveitu niðurgreiddur óháð því hvernig raforkan er unnin, sbr. 1. tölulið 1. mgr. 4. gr. frv. Hvort sem orkan kemur frá vindmyllu eða vatnsorkuveri er nægilegt svigrúm í frv. að mati nefndarinnar til að unnt verði að niðurgreiða raforku sem stafar frá nýrri tækni í vinnslu hennar. Um þetta urðu töluverðar umræður í nefndinni sem og við 1. umr. málsins og kom fram nokkur almennur vilji til þess að leggja þennan skilning í málið.

Herra forseti. Loks bendir meiri hlutinn á að mikilvægt er að umsóknarskylda samkvæmt ákvæði til bráðabirgða I verði vel kynnt fyrir þeim aðilum sem nú njóta niðurgreiðslna á orku til húshitunar svo að tryggt verði að niðurgreiðslur falli ekki niður hjá þeim sem rétt eiga á þeim.

Meiri hlutinn leggur til að frv. verði samþykkt með þeim breytingum sem ég hef hér fjallað um og lagðar eru til í þingskjali 1246.

Hv. þm. Ísólfur Gylfi Pálmason var fjarverandi við afgreiðslu málsins, en hv. þm. Guðjón Guðmundsson, Bryndís Hlöðversdóttir, Svanfríður Jónasdóttir, Helga Guðrún Jónasdóttir, Árni Steinar Jóhannsson, Kjartan Ólafsson, auk þess sem hér stendur, rita undir nefndarálit þetta.