Niðurgreiðslur húshitunarkostnaðar

Laugardaginn 20. apríl 2002, kl. 12:48:57 (8016)

2002-04-20 12:48:57# 127. lþ. 124.38 fundur 640. mál: #A niðurgreiðslur húshitunarkostnaðar# (heildarlög) frv. 78/2002, Frsm. meiri hluta HjÁ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 124. fundur, 127. lþ.

[12:48]

Frsm. meiri hluta iðnn. (Hjálmar Árnason) (andsvar):

Herra forseti. Því er fljótsvarað. Ég hygg að þetta muni ekki gilda um virkjanir hjá þeim sem þegar eru búnir að koma sér upp virkjunum og eru komnir með þær í rekstur. Hér er verið að horfa til framtíðar.