Þjóðhagsstofnun o.fl.

Laugardaginn 20. apríl 2002, kl. 14:00:07 (8031)

2002-04-20 14:00:07# 127. lþ. 124.9 fundur 709. mál: #A Þjóðhagsstofnun o.fl.# frv. 51/2002, PHB (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 124. fundur, 127. lþ.

[14:00]

Pétur H. Blöndal:

Herra forseti. Þjóðhagsstofnun er tímaskekkja. Opinberar spár og greining hagtalna er tímaskekkja. Ég segi já við að leggja þessa stofnun niður, en þó með trega vegna þess að það kemur fram að það eigi að kosta 45--50 millj. kr. að leggja stofnunina niður og ekkert sparast. Það kemur hvorki fram í greinargerð með frv. né í umsögn hv. efh.- og viðskn. að eitthvað muni sparast í framtíðinni þannig að ég er ekkert sérstaklega glaður með það að leggja niður stofnun þegar ekkert sparast og meira að segja kostar ríkissjóð.