Frsm. 2. minni hluta sjútvn. (Guðjón A. Kristjánsson) (andsvar):
Herra forseti. Áður en við förum í gegnum umræðu og sjónarmið í þessu máli finnst mér nauðsynlegt að fá hér með andsvari ákveðnar upplýsingar frá hv. þm. Einari K. Guðfinnssyni, formanni sjútvn.
Ég hef tekið eftir því að í brtt. meiri hlutans er lagt til að bráðabirgðaákvæði XXV falli brott en efni þess gert að 9. gr. a. í frv., ef ég man rétt. Nú er það svo að bráðabirgðaákvæði XXV í lögunum er þó nokkuð öðruvísi orðað en 9. gr. a. er orðuð í brtt. meiri hlutans. Ég tek t.d. eftir því að síðasta málsgrein bráðabirgðaákvæðis XXV í lögum um stjórn fiskveiða, sem er um báta undir 10 brúttórúmlestum og minni, er ekki með inni í þeim kafla sem færður er yfir í 9. gr. a. í tillögunum. Ég held ég hafi skilið það rétt að allt annað í þessu bráðabirgðaákvæði falli niður.
Ég vil spyrja hv. þm. hvort þetta sé réttur skilningur og hvort að þessu þurfi ekkert að huga.