Framhald þingfundar

Laugardaginn 20. apríl 2002, kl. 20:36:52 (8072)

2002-04-20 20:36:52# 127. lþ. 124.91 fundur 530#B framhald þingfundar# (um fundarstjórn), Forseti HBl
[prenta uppsett í dálka] 124. fundur, 127. lþ.

[20:36]

Forseti (Halldór Blöndal):

Það varð að samkomulagi milli mín og formanna þingflokka að umræðu skyldi fram haldið á mánudag. Gert er ráð fyrir að umræðu um 63., 64. og 65. dagskrármál geti lokið á mánudaginn. Munum við sem þennan fund sátum reyna að greiða fyrir því að svo geti orðið.