Steingrímur J. Sigfússon (andsvar):
Herra forseti. Það sem ég er að gagnrýna hér er að hv. ræðumaður Vilhjálmur Egilsson var í raun og veru að segja að austur væri vestur og norður væri suður og fór í marga hringi í ræðu sinni. Mér finnst að það hefði verið miklu heiðarlegra af hv. þm. og ríkisstjórninni að koma bara fram og segja: Við höfum skipt um skoðun. Við ætlum að hverfa frá fyrri ákvörðunum, fyrri reglum sem mótaðar voru um veitingu ríkisábyrgða og hefja veitingu ríkisábyrgða gagnvart einstökum fyrirtækjum á þessum grunni en reyna ekki hið ómögulega að segja að þetta sé samrýmanlegt. Kjarninn í niðurstöðu nefndarstarfsins sem lá til grundvallar setningu laga um ríkisábyrgðir 1977 var einmitt sá að það þyrfti að fara ákaflega varlega í allar sérstakar ábyrgðarveitingar, skoða hvert tilvik mjög vandlega, meta áhættuna og skoða hvaða fordæmisgildi það hefði gagnvart öðrum aðilum o.s.frv. Svo koma menn bara hér og ýta þeim lögum ósköp einfaldlega á einu bretti til hliðar af því að það er augljóst að þetta mál gengi ekki upp ef farið væri eftir þeim lögum. Þá eiga menn bara að viðurkenna það.