Árni Steinar Jóhannsson (um atkvæðagreiðslu):
Virðulegi forseti. Ég hef við umræðuna um frv. gert grein fyrir sterkum fyrirvörum sem ég hef um þetta mál. Þar er sérstaklega lögð áhersla á svokallaða innskilareglu og síðan byggðatengingu vegna hugsanlegrar aukningar í þessari tegund með því að hún gangi eins og fyrr á Íslandsmið. Við munum því sitja hjá við atkvæðagreiðslu um þetta mál.