Bryndís Hlöðversdóttir:
Herra forseti. Ég heyrði ekki umrætt bjartsýnisviðtal við hæstv. forseta Alþingis þannig að ég ætla ekki að tjá mig um það. En það er alveg ljóst að við stöndum frammi fyrir því að í dag er 61 mál á dagskránni. Þar eru ekki inni, eftir því sem ég best sé, stórmál eins og t.d. byggðaáætlun sem mætti þá hugsanlega túlka sem svo að eigi ekki að fara í gegnum þingið. Mér skilst að eitthvað tefji það að hún geti komið á dagskrá. Hún er alla vega ekki eitt af þessu 61 máli og það eitt og sér gæti tekið svolítinn tíma.
Við ætluðum að ljúka þingstörfum samkvæmt áætlun í fyrradag, herra forseti, þannig að ég held að það sé alveg ljóst að við þurfum að endurskipuleggja okkur og kannski setja okkur nýja áætlun til að geta ákveðið hvenær við ætlum að hafa þinglok. Það er ekki að okkur liggi í sjálfu sér lífið á, en áætlunin miðaði við síðasta vetrardag og það er alveg ljóst að hún stenst ekki og mörg stór umræðumál eiga eftir að fara í gegnum þingið. Við þurfum því að setja okkur nýja áætlun um þinglokin, herra forseti. Ég get tekið undir það.