Afgreiðsla mála fyrir þinghlé

Föstudaginn 26. apríl 2002, kl. 10:07:32 (8241)

2002-04-26 10:07:32# 127. lþ. 130.91 fundur 550#B afgreiðsla mála fyrir þinghlé# (aths. um störf þingsins), SAÞ
[prenta uppsett í dálka] 130. fundur, 127. lþ.

[10:07]

Sigríður A. Þórðardóttir:

Herra forseti. Það er alveg ljóst að það líður að þinglokum. Ég hlustaði á ágætt viðtal við forseta þingsins Halldór Blöndal í morgun. Mér þykir afskaplega eðlilegt að hann sé bjartsýnn við upphaf sumars um að ljúka megi þinginu á næstu dögum. Dagskráin í dag er löng, með 61 máli. Ég tek undir það að við þurfum að setjast niður og ræða um hvernig við ljúkum þinghaldinu í vor.