Iðnaðarráðherra (Valgerður Sverrisdóttir) (andsvar):
Hæstv. forseti. Út af því að hv. þm. ber þetta saman við orkubúið vil ég fyrst segja það að í þessu tilfelli tekur sveitarfélagið þá ákvörðun að selja sinn hlut. Þá er það að sjálfsögðu skylda mín sem ráðherra sem fer með þetta mál og fer með eigur ríkisins í fyrirtækinu að hugsa um þau verðmæti sem ríkið á í fyrirtækinu. Hvað hefði verið sagt af hálfu hv. þingmanns og Alþingis ef það hefði ekki verið haft að leiðarljósi í sambandi við málið allt að verja hlut ríkisins, eigur almennings í fyrirtækinu?
Um það hvernig mat er framkvæmt er það að sjálfsögðu matsverð. Það er markaðurinn sem ræður, í þessu tilfelli eins og alltaf, hvaða verð fæst fyrir fyrirtæki og eign ríkisins í fyrirtækjum. Hv. þm. ætti að vita það. En sem sagt, málflutningur hv. þm. er alveg með ólíkindum að mínu mati og ég undrast að hann skuli ekki átta sig á aðalatriðunum.