Þjóðhagsstofnun o.fl.

Mánudaginn 29. apríl 2002, kl. 14:44:45 (8361)

2002-04-29 14:44:45# 127. lþ. 132.3 fundur 709. mál: #A Þjóðhagsstofnun o.fl.# frv. 51/2002, JóhS (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 132. fundur, 127. lþ.

[14:44]

Jóhanna Sigurðardóttir:

Herra forseti. Ríkisstjórnarflokkarnir eru að gera mikil mistök með því að leggja niður Þjóðhagsstofnun. Það styðst hvorki við hagfræðileg né fagleg rök og mun kosta tugi milljóna í aukin útgjöld. Það er því engin skynsemi í þessari leið. Ég mótmæli líka harðlega þeim vinnubrögðum sem viðgengist hafa í öllu þessu máli gagnvart starfsfólkinu. Þau eru ríkisstjórninni til skammar.