Jóhanna Sigurðardóttir (um atkvæðagreiðslu):
Herra forseti. Það er afar ámælisvert hvernig stjórnarflokkarnir keyra málið með hraði í gegnum þingið án þess að nauðsynleg gögn fáist, eins og mat á gjaldþrotalíkum og viðskiptaáætlun, og það er auðvitað sérlega ámælisvert að ríkisábyrgðalögum er kippt úr sambandi.
20 milljarða ríkisábyrgð til eins fyrirtækis er afar hæpin enda telja margir miklar líkur á því að þessi ábyrgðarveiting gangi gegn jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar og samkeppnislögum. Öll þjóðin er knúin til að taka ábyrgð á gífurlegri áhættufjárfestingu sem margir telja líkur á að muni falla á skattgreiðendur.
Það er líka kaldhæðnislegt að Sjálfstfl. skuli vera í forsvari fyrir svona ríkisforsjá og pilsfaldakapítalisma sem ég hafna. Ég segi nei.