Steingrímur J. Sigfússon (andsvar):
Herra forseti. Ég hafði ekki áttað mig á því hversu sorglega er komið fyrir hv. þm. Vilhjálmi Egilssyni fyrr en ég heyrði hann flytja þessa ræðu. Hv. þm. hefur að vísu orðið ber að því frammi fyrir alþjóð núna í hverju málinu á fætur öðru að láta berja sig niður og greiða atkvæði gegn sannfæringu sinni eins og ekkert sé, lýsir því yfir við þjóðina að hann sé í raun og veru á móti ríkisábyrgðinni til deCODE en hann verði samt að styðja málið af því að það sé ríkisstjórnarmál.
Það má kannski segja að hv. þm. sé í þeirri óvenjulegu aðstöðu að vera ekki að reyna að þjóna tveimur herrum heldur þremur, þ.e. Verslunarráðinu, ríkisstjórninni og samvisku sinni. En það er alveg ljóst hvaða herra er minnst virtur í þessu kompaníi, það er samviska þingmannsins. Henni er ævinlega ýtt til hliðar. Ekki var það betra þegar hv. þm. fór að útlista að menn skyldu ekki vera til sölu í þessu máli af því að það ættu að koma peningar í opinberar framkvæmdir í Skagafirði fyrir söluandvirði verksmiðjunnar. Þá eiga menn auðvitað að vera falir að mati hv. þm. Vilhjáms Egilssonar og hann skilur ekki svona hugsunarhátt, að menn skuli leyfa sér að hafa uppi einhverja prinsippafstöðu í málum af þessu tagi og telja t.d. að fjármunum til opinberra framkvæmda, vegamála og annarra slíkra brýnna verkefna, sem bíða tugum og hundruðum saman úti um allt land, eigi að skipta á fjárlögum eða samkvæmt vegáætlun og með það eigi að fara samkvæmt almennum leikreglum. Hvað ætlar hv. þm. Vilhjálmur Egilsson að segja öllum hinum byggðarlögunum þar sem brýnar framkvæmdir bíða en menn eru ekki að fá neina peninga vegna steinullarverksmiðjusölu? Það er á þessum grunni sem við höfum tekið okkar almennu afstöðu í þessu máli. Við teljum óskynsamlegt að ríkið selji eignarhlut sinn við þessar aðstæður og auki þar með á öryggisleysi verksmiðjunnar. Það tekur hv. þm. undir að séu gild rök, gerði það í ræðu sinni. Við erum líka ósammála þeirri aðferðafræði að taka hluta af þessu söluandvirði, veifa því sem gulrót, stytta sér leið fram hjá öllum venjulegum reglum um meðferð opinberra fjármuna til þess að reyna að sætta menn við þetta í héraðinu. Þetta er heldur lágkúrulegt allt saman, herra forseti.