Upplýsingar um þingmál

Fimmtudaginn 02. maí 2002, kl. 10:43:36 (8607)

2002-05-02 10:43:36# 127. lþ. 135.91 fundur 569#B upplýsingar um þingmál# (aths. um störf þingsins), Forseti HBl
[prenta uppsett í dálka] 135. fundur, 127. lþ.

[10:43]

Forseti (Halldór Blöndal):

Að gefnu tilefni mun ég, bæði vegna beiðni um að efh.- og viðskn. verði kölluð saman út af þessu máli í gær og eins vegna þess að sú beiðni hefur nú verið ítrekuð hér af einum nefndarmanna, óska eftir því við formann efh.- og viðskn. að hann kalli nefndina saman út af þessu máli.