2002-05-03 00:08:11# 127. lþ. 135.20 fundur 716. mál: #A álbræðsla á Grundartanga# (fjárfestingar hlutafélagsins) frv. 75/2002, Frsm. GuðjG (flutningsræða)
[prenta uppsett í dálka] 135. fundur, 127. lþ.

[24:08]

Frsm. iðnn. (Guðjón Guðmundsson):

Herra forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti iðnn. um frv. til laga um breytingu á lögum nr. 62/1997, um heimild til samninga um álbræðslu á Grundartanga, með síðari breytingum.

Frumvarpinu er ætlað að veita Norðuráli hf. heimild til að taka þátt í öðrum félögum hér á landi og fjárfesta í öðrum atvinnurekstri en áliðnaði. Þannig skapast möguleiki á að ráðstafa hagnaði úr rekstri Norðuráls hf. í íslensku atvinnulífi í stað þess að hann renni allur úr landi.

Nefndin vekur athygli á því að Norðurál hf. mun ekki njóta skattalegrar fyrirgreiðslu varðandi þátttöku sína í öðrum atvinnurekstri og mun því þurfa að greiða skatta af hlutdeild sinni í þeim rekstri samkvæmt almennum reglum.

Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.

Ísólfur Gylfi Pálmason var fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Undir þetta nefndarálit rita Hjálmar Árnason, Guðjón Guðmundsson, Bryndís Hlöðversdóttir, Pétur H. Blöndal, Svanfríður Jónasdóttir, Helga Guðrún Jónasdóttir, Kjartan Ólafsson og Árni Steinar Jóhannsson með fyrirvara.