2002-05-03 00:09:36# 127. lþ. 135.31 fundur 54. mál: #A virkjun Hvalár í Ófeigsfirði# þál. 33/127, Frsm. GuðjG (flutningsræða)
[prenta uppsett í dálka] 135. fundur, 127. lþ.

[24:09]

Frsm. iðnn. (Guðjón Guðmundsson):

Herra forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti iðnn. um till. til þál. um undirbúningsvinnu fyrir virkjun Hvalár í Ófeigsfirði.

Tillagan miðar að því að iðnaðarráðherra verði falið að gera nauðsynlegar forathuganir til að hægt verði að meta hagkvæmni mögulegrar virkjunar Hvalár í Ófeigsfirði á Ströndum, en virkjun árinnar er einn af ónýttum möguleikum Íslendinga til orkuöflunar.

Nefndin bendir á að ávallt er nauðsynlegt að kanna nýja möguleika á orkuöflun í öllum landshlutum til að tryggja orkuöflun fyrir landsmenn til frambúðar.

Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt óbreytt.

Bryndís Hlöðversdóttir og Kjartan Ólafsson voru fjarverandi við afgreiðslu málsins, en undir þetta nefndarálit rita Hjálmar Árnason, Ásta Möller, Pétur H. Blöndal, Svanfríður Jónasdóttir, Helga Guðrún Jónasdóttir, Árni Steinar Jóhannsson og Ísólfur Gylfi Pálmason.