Frestun á fundum Alþingis

Föstudaginn 03. maí 2002, kl. 14:04:40 (8789)

2002-05-03 14:04:40# 127. lþ. 137.1 fundur 741. mál: #A frestun á fundum Alþingis# þál. 29/127, forsrh. (flutningsræða)
[prenta uppsett í dálka] 137. fundur, 127. lþ.

[14:04]

Forsætisráðherra (Davíð Oddsson):

Herra forseti. Ég mæli fyrir till. til þál. um samþykki til frestunar á fundum Alþingis samkvæmt 1. mgr. 23. gr. stjórnarskrárinnar. Tillagan hljóðar svo:

,,Alþingi ályktar að veita samþykki til þess að fundum þingsins verði frestað frá 2. maí 2002 eða síðar, ef nauðsyn krefur, til septemberloka.``

Tillagan skýrir sig sjálf.