Ábyrgð skuldabréfa vegna nýrrar starfsemi Íslenskrar erfðagreiningar

Föstudaginn 03. maí 2002, kl. 14:15:42 (8797)

2002-05-03 14:15:42# 127. lþ. 137.2 fundur 714. mál: #A ábyrgð skuldabréfa vegna nýrrar starfsemi Íslenskrar erfðagreiningar# frv. 87/2002, SvH (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 137. fundur, 127. lþ.

[14:15]

Sverrir Hermannsson:

Herra forseti. Með samþykkt þessa frv. er verið að smíða stærsta axarskaft í sögu Alþingis. Almenningur hlýtur að verða uggandi um Íslands hag í höndum manna sem þannig deila og drottna. Þetta mál verður ekki látið liggja í láginni og því síður í þagnargildi, enda mun það vafalaust minna á sig óþyrmilega áður en líður.

Herra forseti. Svar mitt við þessum fráleita málatilbúnaði er þvert nei.