Ögmundur Jónasson:
Herra forseti. Hér er verið að veita hæstv. fjmrh. heimild til að gangast í 20 milljarða ábyrgð fyrir hönd íslenskra skattgreiðenda. Lögum um ríkisábyrgð er vikið til hliðar en í stað þeirra kemur svohljóðandi setning, með leyfi forseta:
,,Fjármálaráðherra veitir ábyrgðina að uppfylltum þeim skilyrðum sem hann metur gild.``
Þessi setning kemur í stað ríkisábyrgðarlaganna frá 1997. Ég segi nei.