Svanfríður Jónasdóttir:
Herra forseti. Hér er til afgreiðslu tillaga ríkisstjórnarinnar um stefnu í byggðamálum. Almennt orðuð tilmæli í 20 línum og hvergi hönd á neinu festandi. Það er þessi tillaga sem við erum að samþykkja núna.
Þetta er auðvitað ekki boðlegt sem byggðaáætlun fyrir árin 2002--2005, hvorki fyrir fólkið í landinu né hið háa Alþingi. Samfylkingin mun því sitja hjá við afgreiðslu þessa málamyndagjörnings. Stjórnarflokkarnir verða sjálfir að bera ábyrgð á sínum málamiðlunum.