Stefna í byggðamálum 2002--2005

Föstudaginn 03. maí 2002, kl. 14:30:31 (8808)

2002-05-03 14:30:31# 127. lþ. 137.3 fundur 538. mál: #A stefna í byggðamálum 2002--2005# þál. 30/127, GAK (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 137. fundur, 127. lþ.

[14:30]

Guðjón A. Kristjánsson:

Herra forseti. Stefnunni í byggðamálum 2002--2005, þáltill. sem við ræddum í nótt, var lýst svo að hún væri hvorki fugl né fiskur. Hún væri í skötulíki. Mér finnst hún aðallega snúa út og suður og sérstaklega suður. Ég greiði ekki atkvæði.