Þórunn Sveinbjarnardóttir:
Herra forseti. Þetta frv. var afgreitt á mjög stuttum tíma bæði í hv. umhvn. og á hinu háa Alþingi. Umfjöllunin var ófullnægjandi og mörgum spurningum er enn ósvarað um markmið, skipulag, verkefni og almenna starfsemi hinnar nýju Umhverfisstofnunar. Málið er í stuttu máli sagt vanbúið og ótímabært. Samfylkingin segir nei.