Þuríður Backman:
Herra forseti. Vinstri hreyfingin -- grænt framboð efast um að frv. þetta verði til þess að efla náttúrustofurnar og telur skorta hin faglegu rök fyrir þeim breytingum sem það felur í sér. Frv. mætir mikilli andstöðu forsvarsmanna náttúrustofanna auk þess sem veigamiklar athugasemdir hafa komið fram frá Náttúrufræðistofnun Íslands og Náttúruvernd ríkisins.
Vinstri hreyfingin -- grænt framboð mun sitja hjá við atkvæðagreiðsluna. Við fluttum frávísunartillögu sem var felld en við munum sitja hjá við atkvæðagreiðsluna í heild.