Svanfríður Jónasdóttir:
Herra forseti. Með lögfestingu þessa frv. er í fyrsta lagi verið að skipta um nafn á greiðslum útgerðarinnar og kalla þær veiðigjald. Það mun ekki slá ryki í augu almennings. Í öðru lagi er verið að hækka kvótaþakið svo einstaka útgerðir geti haft umráð yfir stærri hluta kvótans. Um það verður seint sátt. Í þriðja lagi er verið að auka svokallaðan byggðakvóta og festa í sessi. Það mun ekki auka réttlætið í kerfinu.
Herra forseti. Samfylkingin er á móti þessu máli.