Ávarp aldursforseta

Mánudaginn 01. október 2001, kl. 14:26:25 (2)

2001-10-01 14:26:25# 127. lþ. 0.2 fundur 2#B ávarp aldursforseta#, Aldursforseti PP
[prenta uppsett í dálka] 0. fundur, 127. lþ.

[14:26]

Aldursforseti (Páll Pétursson):

Ég býð hv. alþingismenn velkomna til þingstarfa. Ég vona að störf Alþingis sem nú eru að hefjast verði landi og þjóð til heilla. Enn fremur læt ég í ljós þá ósk að við alþingismenn eigum gott samstarf við starfsfólk Alþingis eins og endranær.