Stefnuræða forsætisráðherra og umræða um hana (útvarpsumræður)

Þriðjudaginn 02. október 2001, kl. 19:50:28 (10)

2001-10-02 19:50:28# 127. lþ. 2.1 fundur 34#B Stefnuræða forsætisráðherra og umræða um hana (útvarpsumræður)#, Forseti HBl
[prenta uppsett í dálka] 2. fundur, 127. lþ.

[19:50]

Forseti (Halldór Blöndal):

Umræðurnar skiptast í þrjár umferðir og hefur hver þingflokkur, aðrir en þingflokkur forsrh., til umráða 12 mínútur í fyrstu umferð, í annarri umferð sex mínútur og í hinni þriðju fimm mínútur hver þingflokkur.

Röð flokkanna í öllum umferðum er þessi: Sjálfstfl., Samfylkingin, Framsfl., Vinstri hreyfingin -- grænt framboð og Frjálslyndi flokkurinn.

Ræðumenn verða fyrir Sjálfstfl. Davíð Oddsson forsrh. í fyrstu umferð, í annarri umferð Ásta Möller, 19. þm. Reykv., og Guðjón Guðmundsson, 4. þm. Vesturl., í þriðju umferð. Ræðumenn Samfylkingarinnar verða í fyrstu umferð Össur Skarphéðinsson, 7. þm. Reykv., Margrét Frímannsdóttir, 3. þm. Suðurl., í annarri og Jóhann Ársælsson, 3. þm. Vesturl., í þriðju umferð. Fyrir Framsfl. tala Siv Friðleifsdóttir umhvrh. í fyrstu umferð, í annarri Jón Kristjánsson, heilbr.- og trmrh., og í hinni þriðju Magnús Stefánsson, 2. þm. Vesturl. Ræðumenn fyrir Vinstri hreyfinguna -- grænt framboð verða Steingrímur J. Sigfússon, 3. þm. Norðurl. e., í fyrstu umferð, í annarri umferð Kolbrún Halldórsdóttir, 17. þm. Reykv., og í hinni þriðju Jón Bjarnason, 5. þm. Norðurl. v. Fyrir Frjálslynda flokkinn tala í fyrstu umferð Sverrir Hermannsson, 18. þm. Reykv., og Guðjón A. Kristjánsson, 4. þm. Vestf., í annarri og þriðju umferð.