Heilbrigðisráðherra (Jón Kristjánsson):
Herra forseti. Ágætu tilheyrendur. Fyrir skemmstu átti ég samtal um efnahagsmál við fróðan mann sem reyndi að telja mér trú um að sjávarútvegur skipti nánast engu um efnahagsframvinduna á Íslandi, það skipti síður en svo miklu máli í efnahagslegu tilliti að reisa álver á Reyðarfirði og ekki vildi hann sjá sín börn í vinnu á þvílíkum stað. Manninum var fyllsta alvara. Hann hélt því fram að nýja hagkerfið, ferðaþjónusta og opinber þjónusta á borð við heilbrigðisþjónustu, væri sá grundvöllur sem við mundum fyrst og fremst byggja efnahagslega velferð á í framtíðinni.
Núna, nokkrum vikum eftir þetta samtal, standa málin þannig að nýja hagkerfið er í niðursveiflu og ferðaþjónustan í heiminum er í uppnámi um sinn. Vissulega vonum við af alhug að hér sé um tímabundið ástand að ræða, að breyting verði á og alþjóðasamfélaginu takist að bregðast við þeim áhrifum sem hryðjuverkin óskaplegu hafa í för með sér.
Þetta samtal hefur hins vegar orðið mér hugstætt vegna þess viðhorfs til framleiðsluatvinnuveganna í landinu sem þarna kemur fram og virðist ekki einsdæmi í þjóðfélagsumræðunni um þessar mundir. Heilbrigðis- og velferðarþjónustu í þessu landi megum við aldrei skilja eða skilgreina þannig að þessir veigamiklu þættir samfélagsþjónustunnar geti farið að lifa sjálfstæðu lífi óháð því sem gerist í atvinnulífinu. Því verði jafnan að hafa það hugfast að það er atvinnustarfsemin og verðmætasköpunin sem býr til svigrúmið sem við höfum til að þjóna þeim sem sjúkir eru og þeim sem sjálfsagt er að tryggja réttindi í velferðarþjónustunni.
Eitt sinn var talað um að velferðin skyldi byggjast á varanlegum grunni og stjórnmálasamtök jafnaðarmanna sóttu fram undir þessu slagorði, velferð á varanlegum grunni. Þau samtök tilheyra reyndar fortíðinni og undantekning að forustumenn nýju samtakanna, sem tóku við undir merki Samfylkingar og Vinstri grænna, taki sér þessi orð í munn sem eitt sinn voru í hávegum höfð á vinstri væng stjórnmálanna.
En hvað felst í þessum orðum --- velferð á varanlegum grunni? Í þeim felst að við verðum að virkja í mörgum skilningi til að geta rekið velferðarþjónustuna. Við verðum að virkja fallvötnin, við verðum að virkja viljann og hugvitið á öllum sviðum til þess að skapa okkur þau lífskjör sem eru með því besta í heiminum. Við verðum að nýta auðlindir okkar og skynsemi og sækja fram á öllum sviðum atvinnulífsins ef við ætlum að standa þeim þjóðum á sporði sem við höfum jafnan miðað okkur við á lýðveldistímanum. Öflug framsókn í atvinnumálum er ávísun á góða velferðarþjónustu. Í þessum anda eru stjórnarflokkarnir og ríkisstjórnin að vinna og ætla sér að gera það.
Það þarf að ríkja sátt um heilbrigðisþjónustuna. Það þarf að ríkja sátt um undirstöðuatriði velferðarkerfisins og um það þurfum við að geta sagt eins og skáldið forðum:
Heilbrigðisþjónustan þarf þannig að byggja á pólitískri stefnumótun, á þeirri þekkingu og tækni sem fagfólkið býr yfir og hjartalagi sem setur þjónustu við fólk í fyrirrúm. Forgangsröðun í heilbrigðisþjónustunni hefur ráðist af því fram til þessa og mun ráðast af því meðan ég sit í embætti heilbrrh. hver þarf mest á þjónustunni að halda en ekki á því hver hefur bestu fjárráðin.
Virðulegi forseti. Verði friðurinn sem um þetta grundvallaratriði hefur ríkt í sundur slitinn, þá getum við ekki lengur talað um þessa þjónustu með stolti. Við verðum alltaf að gera okkur grein fyrir hvaða fólk það er sem við erum að þjónusta. Meira en helmingur þeirra sem leita sér læknis eru börn, öryrkjar og aldraðir. Eru það þessir hópar sem menn vilja gefa kost á að kaupa sig fram fyrir á biðlistum eða færast þeir aftur fyrir í biðröðinni þegar fagfólkið er upptekið við að sinna hinum?
Virðulegur forseti. Með því að stilla komugjöldum í heilsugæslunni í hóf vil ég koma þeim skilaboðum til almennings að nýta sér heilsugæsluna í ríkari mæli en nú er gert. Öflug almenn heilsugæsla er grundvöllur að góðu heilsufari þjóðar. Þörf er á að efla heilsugæsluna enn frekar og munu tillögur þess efnis vonandi liggja fyrir á nýju ári.
Annar þáttur sem skiptir verulegu máli í heilsufari þjóðar þegar við horfum til framtíðar eru forvarnir. Ég hef á þeim stutta tíma sem ég hef setið í embætti heilbr.- og trmrh. endanlega sannfærst um mikilvægi þess að veita í einn farveg öllu því fé sem varið er til forvarna. Ég tel afar brýnt að sameina krafta þeirra sem með einum eða öðrum hætti fást við að skipuleggja forvarnir á Íslandi. Stjórn og öll skipulagning forvarna þarf að vera einföld, gagnsæ og kraftmikil til þess að skjótur árangur náist og þeim fjármunum sem til þessa málaflokks renna sé varið á sem hagkvæmastan hátt.
Herra forseti. Ég endurtek að það góða sem við viljum í uppbyggingu velferðarþjónustu byggist á öflugri atvinnuuppbyggingu. Þess vegna vinnum við af fullum krafti að áætlunum um stóriðju. Þess vegna þarf að virkja fallvötnin og hugvit landsmanna. Þess vegna þarf að treysta grunn allra atvinnugreina og skapa þeim samkeppnishæf skilyrði á alþjóðamarkaði.
Stjórnmál snúast um að láta hugsjónir rætast. Við framsóknarmenn byggjum á hugsjónum um frelsi einstaklinganna, lýðræði, jafnræði, samhjálp og samvinnu og möguleika fólks til að láta drauma sína rætast. Öflugt og fjölbreytt atvinnulíf og traust velferðarkerfi verður ekki aðskilið í þessari framtíðarsýn. Með því að þetta tvennt fari saman sköpum við farsæld fyrir komandi kynslóðir. --- Góðar stundir.