Fjármálaráðherra (Geir H. Haarde) (andsvar):
Herra forseti. Ef það er rétt hjá hv. þm. að fá fyrirtæki úti á landi borgi tekjuskatt þá held ég að við ættum að reyna sameinast um að fjölga þeim með því að búa þeim þannig umhverfi að þau geti grætt og borgað skatta. (JB: Já.) Borgað þessi 18% sem við ætlum að leggja á í staðinn fyrir þessi 30. (JB: Alveg hárrétt.)
Að öðru leyti vil ég segja að mál það sem þingmaðurinn gerir að umtalsefni segir hann að sé illa undirbúið. Það finnst mér nokkuð stórmannlega talað um frv. sem viðkomandi þingmaður hefur ekki einu sinni séð --- (JB: Ja, miðað við svör hæstv. ráðherra.) vegna þess að það kemur hingað á borðin í dag. Við skulum ræða þetta allt saman þegar það frv. kemur til 1. umr. sem ég vona að verði í næstu viku. Þá skulum við fara yfir þetta allt saman. Það er alveg sjálfsagt mál. En þetta frv. er hins vegar eitt af þeim þingmálum sem hefur hvað vandlegast verið undirbúið, rækilega undirbúið í ráðuneytinu og í samstarfi milli stjórnarflokkanna eins og mun koma í ljós þegar þingmenn fá þetta í hendurnar.
Að öðru leyti kæri ég mig ekkert um að svara þessum sleggjudómum þingmannsins eins og um það að ráðherrann viti ekki hver sé skattstofn tryggingagjaldsins, að hann leggist á laun. Ég svara því ekki.