Heilbrigðisráðherra (Jón Kristjánsson) (andsvar):
Herra forseti. Það hefur staðið yfir í ráðuneytinu vinna í sumar við að gera þjónustusamning við SÁÁ. Þeir eiga við vanda að etja og fjárvöntun í sínum rekstri og hefur verið unnið að því að kortleggja það. Ég vona svo sannarlega að það takist að ná slíkum samningi og þá liggi fyrir hvaða þjónusta er af þeim keypt, m.a. þá að meta þjónustuna á Staðarfelli, skimunina fyrir lifrarbólgu C sem hefur verið framkvæmd þar og önnur þau verkefni sem þeir hafa haft með höndum. Þeir hafa unnið mikilvægt starf sem ég tel afar mikilvægt í heilbrigðisþjónustunni. Við höfum lagfært launabætur sem þeir áttu inni upp á 36 millj. kr. sem koma inn á fjáraukalög, en hins vegar hef ég ekki á þessari stundu niðurstöðu um það hvort þessi þjónustusamningur næst eða hvað hann muni kosta en það mun vonandi skýrast á næstu vikum þannig að við getum þá gert okkur grein fyrir hvaða kostnaður er honum samfara.
Ég legg auðvitað áherslu á að fyrir þessari starfsemi sé séð en ég legg líka mikla áherslu á að settur sé utan um hana rammi og það sé ljóst hvað við erum að kaupa og hvaða þjónustu á að veita á þessari ágætu stofnun.