Ásta R. Jóhannesdóttir:
Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. forsrh. fyrir þetta svar og ég tek undir með honum að þetta er ákaflega stór og mikilvægur málaflokkur og ég veit að hæstv. heilbrrh. hefur lagt mikla áherslu á þetta. En það vegur auðvitað alltaf mjög þungt þegar hæstv. forsrh. gerir þennan málaflokk sérstaklega að umræðuefni í stefnuræðu. Eins og ég sagði í máli mínu áðan eru miklar væntingar hjá þeim sem eiga við þennan sjúkdóm að stríða og aðstandendum þeirra til einmitt þessara orða hæstv. ráðherra og þess vegna vildi ég spyrja hæstv. ráðherra:
Verða viðbótarfjárveitingar auknar til málaflokksins? Eru þær væntanlegar á næstunni?
Það væri mikilvægt að fá upplýsingar um það því að ég veit að margir bíða eftir að fá svör við því hvaða úrbóta er að vænta frá ríkisstjórninni.