Ásta R. Jóhannesdóttir:
Herra forseti. Ég vil bara fagna þessari yfirlýsingu frá hæstv. forsrh. að þessi málaflokkur verði tekinn sérstaklega fyrir og að við munum þá vonandi sjá sem fyrst áhrif þeirra orða og í framhaldi af því aukna þjónustu til þeirra sem stríða við þennan alvarlega sjúkdóm.