Kristján L. Möller (andsvar):
Herra forseti. Ég tek eftir því að hæstv. sjútvrh. hvarf héðan úr salnum þegar þeir stjórnarþingmenn Einar Oddur Kristjánsson og Hjálmar Árnason voru að ræða það frv. sem þingmenn Samfylkingarinnar voru að flytja, þó að þessi umræða sé nú komin út í annað form.
En hv. þm. Hjálmar Árnason lýsti því yfir að þetta væru sjónarmið hans. Við eigum að fara eftir sannfæringu okkar og engu öðru. Vafalaust eru skiptar skoðanir hjá framsóknarmönnum um þetta. En ég ítreka það sem ég sagði áðan: Hér hefur komið fram athyglisverð yfirlýsing frá starfandi þingflokksformanni Framsfl., frá varaformanni fjárln., sem er sjálfstæðismaður, og ég get ekki séð betur en að með hv. þm. Kristni H. Gunnarssyni sé kominn nýr meiri hluti í sjútvn. til að breyta þessu.
Ég treysti því og vona að allir þeir sem hafa viljað og vilja breyta þessu kerfi og hverfa frá þeim ólögum sem sett voru á smábátana, og sem munu ganga af mörgum sjávarbyggðum dauðum, karpi ekki um hverjir flytja það heldur setjist niður og komi saman nothæfu frv.