Fjármálaráðherra (Geir H. Haarde) (andsvar):
Herra forseti. Ég hef aldrei flutt frv. á Alþingi sem ekki hefur mátt breyta stafkrók í. Að sjálfsögðu er það ekki þannig með þetta mál. Alþingi hefur auðvitað síðasta orðið. Alþing hefur lagasetningarvaldið. Það þarf ekki að ræða það. Þetta frv. er auðvitað lagt fram og fær þinglega meðferð til þess að farið verði í saumana á hverju einasta atriði.
Mér þykir Alþýðusambandið hins vegar taka nokkuð drjúgt upp í sig í yfirlýsingu sinni, sem ég hef undir höndum, með því að fullyrða að þetta frv. leiði til kjaraskerðingar og muni setja kjarasamninga í uppnám. Ég leyfi mér að efast um spádómsgildi þeirrar fullyrðingar og spyr: Hvernig geta menn fullyrt þetta, með tilliti til tryggingagjaldsins, að þessi verði áhrifin á árinu 2002 þegar tryggingagjaldið tekur ekki gildi fyrr en 2003? Ég veit ekki hvernig menn geta fullyrt það.
Hér er talað um að venjulegt launafólk eigi að taka á sig kjaraskerðinguna og þess háttar. Það er ekki nein kjaraskerðing í þessu frv. að okkar dómi. Þvert á móti er markmiðið að bæta kjörin, efla atvinnulífið, hækka launin og auka velmegun í landinu.