Pétur H. Blöndal (andsvar):
Herra forseti. Ég vil þakka hv. þm. fyrir yfirgripsmikla ræðu. Það er rétt sem hann gat um að skoða þarf erfðafjárskattinn og stimpilgjaldið til lækkunar almennt vegna þess að sérstaklega íbúðarhúsnæði, sem er kannski einn stærsti þátturinn í tekjum af stimpilgjaldi, hefur hækkað ótæpilega og það þarf að skoða hvort ekki eigi að lækka stimpilgjaldið svipað og mörkin í eignarskattinum. Stimpilgjaldið er skattur á skuldara og félagslega er það mjög þungur skattur oft og tíðum fyrir fólk sem lendir í fjárhagslegum vandræðum og kröggum. Það gleymist oft. Þannig að þetta er ófélagslegur skattur.
Hv. þm. gat þess, og þess vegna kem ég í andsvar, að fyrirtæki í nýsköpun hefðu oft og tíðum ekki hagnað en bara gjöld vegna skattsins. En hann gleymir því að þegar fyrirtæki er stofnað, þá er það yfirleitt alltaf, vonandi alltaf, til að græða í framtíðinni. Og ef menn sjá 82% af tekjunum eftir skatt í framtíðinni í staðinn fyrir 70%, þá eykur það gleði fjárfesta til að fjárfesta í viðkomandi fyrirtæki. Það gerir fyrirtækjunum léttara að fá fjármagn inn í fyrirtækið þegar fjárfestirinn getur séð 82% af arðinum, hagnaðinum, renna í sinn vasa í staðinn fyrir 70%. Þetta vinnur því ekki á móti nýsköpun heldur með henni. Þetta stuðlar að nýsköpun og það vildi ég sérstaklega undirstrika í þessu, að lækkun á tekjusköttum stuðlar að nýsköpun og eykur gleði manna til að fjárfesta í atvinnulífinu.