Kristján L. Möller (andsvar):
Herra forseti. Ég skal reyna að svara þessari spurningu. Það má eiginlega segja að ég geti svarað þessu á þann veg að ég held að 400 millj. fyrir landið allt dugi ekki til. Ég nefndi það áðan að Byggðastofnun er að mínu mati í fjársvelti og það er sannarlega þannig að mörg fyrirtæki á landsbyggðinni geta ekki leitað til bankakerfisins og fara þá til Byggðastofnunar til þess að fá fyrirgreiðslu vegna atvinnuuppbyggingar eða bara til að halda í horfinu. Við þekkjum dæmi um að mál hafi verið að flækjast inni hjá Byggðastofnun allt frá því í janúar sl. og hafa ekki verið afgreidd enn. Þetta varðar lítil fyrirtæki úti á landi í 1.500 manna kaupstað sem veitir 30--40 manns atvinnu. Þannig má segja sem svo að ef þessar 400 millj. væru til skiptanna þá mundu þær ekki duga til að hleypa lífi í ýmislegt sem þarf að gera úti á landsbyggðinni. Ef það er til samgöngumála þá dugar það lítið í þann pott sem á vantar. En allir peningar til að bæta samgöngur yrðu vel þegnir.