Ísólfur Gylfi Pálmason (andsvar):
Herra forseti. Það er talsvert í lagt að segja að ég væri samþykkur þessari tillögu og væri búinn að breyta afstöðu (Gripið fram í.) minni. Hins vegar --- ef hv. þm. getur hlustað á andsvar mitt í tvær mínútur. Það er eins og þessir ágætu vinstri grænir geti aldrei þagað á meðan á andsvörum stendur --- hafa stórfyrirtæki áhrif á það að við eigum möguleika á einhverju öðru. Margfeldisáhrif verða til við það að stór fyrirtæki blómstri, ýmiss konar þjónusta í þessu sambandi, og ég er alveg viss um að þar með getum við eflt menntun í landinu, eflt nýsköpun í landinu o.s.frv.
Alveg eins og ég sagði rétt áðan, eftir að hafa hlustað á sveitarstjórnarmenn á Austurlandi þá fannst mér sjálfum sem þingmanni á Suðurlandi og fyrrverandi sveitarstjóra ég ekki geta beitt mér gegn þessu vegna þess að þetta er eitthvað sem þeir vilja sjá og fyrir utan það þá hefur þetta margfeldisáhrif á samfélagið. Þetta eykur hagvöxt og eykur möguleikana á því að við getum gert eitthvað annað, eins og svo oft er sagt í röðum Vinstri grænna.