Gísli S. Einarsson:
Virðulegur forseti. Við ræðum enn stjórnkerfi fiskveiða og frv. Samfylkingarinnar um breytingu á kerfinu.
Það stjórnkerfi sem við höfum búið við hefur kallað á svonefnt kvótabrask. Fínni orð um sömu aðgerð eru viðskipti með aflaheimildir. Ef viðskipti eru á þann veg að þau leiða til skerðingar á kjörum sumra en hossa öðrum fyrir atbeina löggjafans þá er um að ræða brask og siðleysi. Það er fráleitt að lögin hafi verið sett til að vinna eftir þeim á þann máta sem gert er nú. Þess vegna verður að breyta lögunum.
Menn eru að selja sameign þjóðarinnar. Þeir komast upp með að leggja skipum, reka áhöfnina, græða á kvótasölu og veðsetja sameign þjóðarinnar og svo gengur sameignin jafnvel í erfðir. Þetta vita menn allt saman og þetta viðgengst fyrir opnum tjöldum og þeir sem græða mest hæla sér af því án þess að löggjafarvaldið grípi inn í atburðarásina. Menn tala um kvótaeign sína og þeir fara með kvótaeignina eins og þeim sjálfum hentar án allra afskipta þrátt fyrir lög og lagasetningu og það sem stendur í 1. gr. laganna. Það var ekki markmið með lögunum um fiskveiðistjórn, ef ég man rétt, heldur áttu lögin að vernda fiskstofnana og leiða til meiri hagkvæmni. En, herra forseti, ég verð að segja að það virðist allt saman gleymt. Ef maður lítur til þess og umræðu sem varð á landsfundi Sjálfstfl. um þessi mál þá virðist fiskverndunin vera dottin fyrir borð hjá þeim ágæta flokki. Kerfið er meingallað. Menn eru að kaupa kvóta dýru verði. Menn eru að leigja til sín kvóta á ofurverði þegar þá vantar heimildir fyrir meðafla og oft er meðafla hent í sjóinn til að sleppa við refsingu fyrir að koma í land með veiddan afla sem ekki er heimild fyrir.
Einnig hefur komið fyrir að menn sem eiga nægar heimildir í ýsu hafa lent í því að fá netin full af þorski. Það er svolítið merkilegt að tegundirnar synda nærri því í hvaða tegund af netum sem er og gera engan greinarmun þar á. Það er eins og að hver sú tegund sem verður á vegi togskips með troll eða snurvoðar fari í veiðarfærið. Ef ekki er heimild á viðkomandi skipi er síðasta úrræðið að henda aflanum dauðum aftur í sjóinn.
Herra forseti. Ég nefndi að landsfundur Sjálfstfl. væri nýafstaðinn. Þar gerðust reyndar mikil tíðindi. Samþykkt var prinsipp-sjónarmið jafnaðarmanna um árabil, sem er gjald fyrir aðgang að auðlind sjávar. Þar gerðust einnig þau tíðindi að mikill baráttumaður fyrir þeirri leið sem við jafnaðarmenn höfum barist fyrir, þ.e. fyrningarleiðinni eða að kvótakóngarnir skili gjafakvótanum, sagði sig úr Sjálfstfl. Sá aðili var Markús Möller eins og komið hefur fram í fjölmiðlum og var ekki seinna vænna fyrir hann að gera það og ég virði mann sem stendur svo fast við skoðanir sínar.
Mér þykir líka merkilegt, herra forseti, að menn sem barist hafa gegn stefnu Sjálfstfl. í fiskveiðistjórnarmálum skuli vera þar áfram og láta traðka á skoðunum sínum. Ég á þar við menn sem segja í viðræðu: Þið verðið að breyta kerfinu, en kjósa síðan sjálfir íhaldið. Ég á við menn eins og forustumenn ýmissa trillukarla sem bölsótast yfir kerfinu í viðræðu við mann en svo mæta þeir á landsfund og kjósa íhaldið með breitt bros á vör.
Í DV í gær var umfjöllun um meint misferli sem tengist leigu á aflaheimildum. Þar segir, með leyfi forseta:
,,Mikill fjöldi viðskipta með aflamark á sér stað á degi hverjum. Til að slík viðskipti séu rakin þarf í fyrsta lagi að vera grunur um að eitthvað gruggugt sé á ferðinni varðandi tekju- og kostnaðarskráningu viðskiptaaðila. Í öðru lagi er samkvæmt framansögðu ekki hægt að rekja viðskiptin samkvæmt reikningum frá kvótamiðlurum. Því þyrftu skattrannsóknarmenn að flokka skýrslur Fiskistofu og reyna að rekja út frá þeim hvaða viðskipti eiga sér stað milli viðkomandi aðila. Kunnugir telja hins vegar að slíkt sé svo mikil vinna að það sé nær óvinnandi vegur að finna út úr þessu.``
Hvað er verið að ræða um? Það er verið að ræða um milljarðaviðskipti sem eru á dökkgráu svæði þar sem verið er að skjóta undan fjármunum sem á að greiða skatt af.
Herra forseti. Þessar upplýsingar liggja fyrir og enginn vandi að rekja þær ef menn vilja. Það er verið að framkvæma skattsvik fyrir opnum tjöldum án þess að yfirvöld reyni á nokkurn hátt að skipta sér af því sem fram fer. Slík vinnubrögð eru gjörsamlega óþolandi.
Ég spyr hæstv. sjútvrh.: Ætlar hann eða ætlar ríkisstjórnin að láta það viðgangast að það sé upplýst í fjölmiðlum að fram fari stórkostleg skattsvik án þess að lyfta hönd á móti slíkum vinnubrögðum? Án þess að taka í taumana og koma í veg fyrir að menn séu að svíkja undan skatti, hreinlega stela frá þjóðinni?
Það hlýtur að vera krafa mín og okkar allra sem hér erum að hæstv. sjútvrh. svari því hvort meiningin sé að taka á skattsvikum og svindli sem er í kringum fiskveiðistjórnarkerfið.
Herra forseti. Ég vitna enn í grein í DV í gær þar sem sagt er, með leyfi forseta:
,,Hafa má í huga að samkvæmt tölum á vef frá Fiskistofu hafi meðalverðið oft farið niður fyrir 50 krónur, undanfarna mánuði, reyndar stundum niður í 3 krónur eða minna á kíló.`` --- Hvað skyldu menn vera að segja þarna? Verið er að segja í rauninni að verið sé að falsa tölur. Vita menn að þorskur sem er 8 kg eða meira, 8+ eins og kallað er, gengur á leiguverði á 150 kr.? Vita menn að smáþorskurinn gengur á leigu á 120--130 kr.? Það virðist ekki vera því að upplýsingar liggja fyrir um allt annað. --- ,,Ef samkvæmt því er miðað við að uppgefið verð hjá Fiskistofu sé t.d. að meðaltali 55 krónur á kíló`` --- eins og hér er sagt --- ,,er heildarupphæðin á þessum þorskaflamarksviðskiptum tæpir 2,8 milljarðar króna.``
Þetta er það sem skráð er. En líklegt er að um helmingi hærri upphæð eða meira sé að ræða. Þetta sýnir sem sagt svart á hvítu að gífurlegt misræmi er á milli talna um kvótaleigu og veruleikans og hafa ber í huga að hér er aðeins verið að nefna brot af heildarviðskiptum með aflamarksviðskipti á síðasta fiskveiðiári. Þegar þessar tölur eru hafðar í huga, 2,8 milljarðar, er aðeins verið að nefna brot af þeim viðskiptum sem áttu sér stað á sl. ári.
Herra forseti. Tíma mínum er næstum lokið í þessari seinni ræðu. Ég vil enda orð mín með þessu: Það er aðeins spurning um hvenær en ekki hvort gerð verður grunnbreyting á stjórn fiskveiða, eins og gert er ráð fyrir í því frv. sem við samfylkingarmenn erum að tala hér fyrir.
Herra forseti. Ég ítreka þá spurningu sem ég beindi til hæstv. sjútvrh. hvort hann muni beita sér fyrir afskiptum af meintu kvótasvindli sem skýrt er frá í Dagblaðinu í gær.