Flm. (Jóhann Ársælsson) (um fundarstjórn):
Hæstv. forseti. Það er rétt að 17 þingmenn sitja fyrir Samfylkinguna á þingi. Ég veit þó ekki betur en hæstv. forseti hafi nefnt nafn mitt æðioft í ræðum sínum hér. Ég hefði viljað hafa tækifæri að svara honum. Þegar ég fór fram á það við hann að þessari umræðu yrði fram haldið sem fyrst þá sagði ég það við hann að auðvitað þyrfti hann að tryggja að hann gæti verið við sjálfur. Ég hafði fulla ástæðu til þess að ætla þyrfti að spjalla þyrfti eitthvað við hann um þessi mál. Hann hefur áhuga á þeim og skoðanir á þeim. Ég botna þó ekkert í því og vil óska eftir því að fá það upplýst hvernig stóð á því að hann þurfti þrengjast til þess að hafa umræðuna þannig að hann kæmist ekki til hennar fyrr en henni væri að ljúka.