Heilbrigðisþjónusta og almannatryggingar

Fimmtudaginn 18. október 2001, kl. 11:33:57 (726)

2001-10-18 11:33:57# 127. lþ. 15.2 fundur 169. mál: #A heilbrigðisþjónusta og almannatryggingar# (forgangsröð verkefna o.fl.) frv., ÁRJ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 15. fundur, 127. lþ.

[11:33]

Ásta R. Jóhannesdóttir (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir þessar skýringar. Ég hefði gjarnan viljað fá frá hæstv. ráðherra í seinna andsvari hans skýringar á muninum á þessum samninganefndum, annars vegar nýju samninganefndinni og hins vegar samninganefnd Tryggingastofnunar ríkisins, þ.e. hvort þarna sé um eitthvert annað verksvið að ræða, að hvaða leyti nýja nefndin er öðruvísi eða starfssvið hennar öðruvísi en þeirrar nefndar sem hingað til hefur séð um slíka samninga eða þeirra nefnda sem hafa séð um slíka samninga.