Landsvegir á hálendi Íslands

Fimmtudaginn 18. október 2001, kl. 14:13:40 (753)

2001-10-18 14:13:40# 127. lþ. 15.7 fundur 47. mál: #A landsvegir á hálendi Íslands# þál., Flm. DrH (flutningsræða)
[prenta uppsett í dálka] 15. fundur, 127. lþ.

[14:13]

Flm. (Drífa Hjartardóttir):

Herra forseti. Ég mæli fyrir till. til þál. um framtíðarskipulag og uppbyggingu landsvega á hálendi Íslands. Ásamt mér eru flutningsmenn hv. þm. Arnbjörg Sveinsdóttir, Guðjón Guðmundsson, Ásta Möller, Ísólfur Gylfi Pálmason, Kjartan Ólafsson og Sigríður A. Þórðardóttir.

Tillagan hljóðar svo:

Alþingi ályktar að fela samgönguráðherra að skipa nefnd sem geri tillögur um framtíðarskipulag og uppbyggingu landsvega á hálendi Íslands.

Nefndin verði skipuð fimm mönnum, einum tilnefndum af ráðherra, einum af Sambandi íslenskra sveitarfélaga, einum af Samtökum ferðaþjónustunnar, einum af Náttúruvernd ríkisins og einum af Vegagerðinni.

Þingsályktunartillaga þessi var flutt á 125. og 126. löggjafarþingi en var ekki útrædd. Tillagan er nú endurflutt með þeirri breytingu að einn nefndarmaður skal nú skipaður samkvæmt tilnefningu Samtaka ferðaþjónustunnar.

Umferð á hálendi Íslands fer sívaxandi. Samkvæmt tillögunni skal skipuð nefnd sem semji drög að framtíðarskipulagi og uppbyggingu landsvega á hálendinu þannig að komast megi um það án mikilla svaðilfara, en með nokkrum takmörkunum þó.

Aðalleiðir, þ.e. Kjölur, Sprengisandur, Kaldidalur/Uxa\-hrygg\-ir og Fjallabaksleið nyrðri, þurfa að vera færar dugmiklum fólksbílum, venjulegum jeppum og fólksflutningabílum yfir helsta ferðamannatímann, þ.e. frá júní til september.

Vinsælar leiðir á borð við leiðirnar að Öskju, Gæsavötnum, Herðubreið og Snæfelli, Fjallabaksleið syðri, hringleið um Heklu, Emstruleið, inn í Þórsmörk, Dómadalsleið í Landmannalaugar, um Haukadalsheiði, Eyfirðingabraut, yfir Öxi, að Lakagígum og fleiri vinsælar ferðaleiðir á hálendinu þurfa að vera færar öllum venjulegum jeppum og fólksflutningabílum yfir sumartímann.

Til að þetta geti orðið til frambúðar þarf að veita fé til uppbyggingar og viðhalds þessara vega á hverju ári. Í flokkun veganna þarf að koma fram tilgangur þeirra, þ.e. hverjir fara um þá og hvert. Setja þarf viðmiðunarreglur um hvar á að brúa og hvar ekki. Rétt er að fjármagnið skiptist eftir þessari flokkun og ástandi og mikilvægi hvers vegar eins og reynt er að gera í byggð.

Með góðum og greiðfærum vegum á hálendinu er hægt að draga úr utanvegaakstri og stuðla þar með að verndun gróðurs og ósnortinna svæða, auka öryggi ferðamanna á ferðum um hálendið og tryggja að ekki verði ,,óvart`` til nýjar slóðir hér og þar.

Með efldu vegakerfi á hálendinu er auðveldara að stýra umgengni ferðamanna og náttúruunnenda. Almenningi er þannig gefinn kostur á að njóta stórkostlegrar náttúru, nokkuð sem ekki hefur hingað til verið mögulegt á venjulegum farartækjum.

Nauðsynlegt er að taka mið af skipulagi miðhálendis Íslands við skipulagningu vegakerfis um hálendið. Það ætti að einhverju leyti að taka mið af hugmyndafræðinni um að ferðamenn fari um hálendið og njóti náttúrunnar að degi til en dveljist eins og við verður komið við jaðar þess eða á skipulögðum svæðum yfir nætur.

Á síðasta þingi var þessi þáltill. send til umsagnar víðs vegar og ég verð að segja það, mér til mikillar ánægju, að henni var mjög vel tekið af öllum sem sendu inn umsagnir. Samtök ferðaþjónustunnar gerðu eina athugasemd. Hún laut að því að ekki væri tilnefnt frá þeim. Ég tók hana þá til greina og sú breyting er núna komin inn að Samtök ferðaþjónustunnar tilnefni einn þeirra sem eiga að sitja í nefndinni.

Ég held að ég hafi ekki fleiri orð um þetta en óska eftir því að tillögunni verði vísað til hv. samgn.