Guðmundur Hallvarðsson (andsvar):
Herra forseti. Ég spurði hvort þetta væri einsdæmi í veröldinni en mér heyrðist hv. þm. segja að þetta væri einsdæmi hér á landi. Þar er dálítill munur á. Ég spurði hvort það væri einsdæmi í veröldinni að box væri bannað með þessum hætti.
Í annan stað voru mér líka lögð önnur orð í munn. Ég spurði: Eru flutningsmenn sannfærðir um að ofbeldi muni minnka? Þar er dálítill munur á eða hvort ég hefði fullyrt að ofbeldi mundi aukast. Ég spurði: Eru flutningsmenn sannfærðir um að ofbeldi muni minnka?