Flm. (Gunnar Birgisson) (andsvar):
Virðulegi forseti. Mig langar að leiðrétta hv. þm. Sigríði Jóhannesdóttur. Þetta er ekki árásaríþrótt heldur sjálfsvarnaríþrótt. Fólk má ekki koma hérna upp og snúa öllum staðreyndum við.
Ég vil líka skora á hv. þm. að leggja eitthvað fram því máli sínu til sönnunar að hnefaleikarar á sjötta áratugnum hafi setið fyrir mönnum á dansstöðum eða skemmtistöðum til að kýla þá kalda þegar þeir kæmu út af stöðunum. Þetta eru stór orð. Mér finnst að fólk eigi að vanda málflutning sinn og ekki hafa hann í þessum dúr. Það væri rétt kannski að fá einhverjar skýrslur um þetta mál. Mér finnst þetta hins vegar stór orð sem hér eru höfð í frammi.
Það er ljóst að árið 1956 var verið að banna atvinnumannahnefaleika og séu lögin glöggt lesin þá er spurning hvort ólympískt box er ólöglegt eða ekki. En ég er þeirrar skoðunar, ekki haldinn þeirri forsjárhyggju sem hv. þm. vill, að láta stóra bróður horfa yfir öxlina á okkur í einu og öllu, að við ættum að samþykkja þetta frv. Hún fullyrti að á Norðurlöndum væri verið að banna þetta. Þeir eru búnir að banna þetta víða þar, m.a. í Svíþjóð þar sem þeir hafa verið með atvinnumannahnefaleika. Danir eru ekki búnir að því. Svíar áttu einu sinni heimsmeistara, Ingemar Johannsson, sem vann einu sinni Floyd Patterson en tapaði fyrir honum aftur að vísu. En ég hef ekki heyrt að aðrar Norðurlandaþjóðir séu að fara í að banna ólympíska keppnisgrein.