Flm. (Björgvin G. Sigurðsson):
Herra forseti. Á síðustu öld má segja að þróun lýðræðisins hafi staðnað við fulltrúalýðræðið og nú í upphafi nýrrar aldar blasa við tækifærin til að stíga stór skref í átt að milliliðalausu lýðræði.
Hér er mælt fyrir tillögu þess efnis að Alþingi álykti að setja á stofn nefnd sem kanni möguleika á notkun netsins við að þróa og taka upp milliliðalaust lýðræði í mun meira mæli en verið hefur hina síðari áratugi og nokkurn tíma á Íslandi.
Nefndin kanni hvernig hægt er að nota netið til að þróa milliliðalaust lýðræði og hafi þar að leiðarljósi öfluga persónuvernd við framkvæmd kosninga og þjóðaratkvæðagreiðslna á netinu. Nefndin skal skipuð fulltrúa Háskóla Íslands, Sambands íslenskra sveitarfélaga, stúdentaráðs Háskóla Íslands, Alþingis Íslendinga og fulltrúum allra stjórnmálaflokkanna sem sæti eiga á Alþingi.
Nefndin kanni jafnframt hvaða áhrif milliliðalaust og beint lýðræði hefði á samfélagið, efnahagslega, félagslega og stjórnmálalega, sérstaklega með tilliti til sveitarstjórna þar sem auðvelt og jafnvel byltingarkennt gæti verið að nota milliliðalaust lýðræði í miklum mæli. Stefna skal að því að kosningar til Alþingis og sveitarstjórna fari samhliða hefðbundnum kosningum fram á netinu innan fárra ára.
Ljóst er að þær miklu breytingar sem orðið hafa á félagslegum og efnahagslegum aðstæðum á Vesturlöndum síðustu áratugi kalla á breytingar á lýðræðisfyrirkomulaginu. Almenn og góð menntun, mikil tölvueign, meiri frítími en nokkurn tíma áður kallar allt á að fólk hafi miklu meira um hagi sína að segja en áður. Sá tími er liðinn undir lok að fulltrúar almennings taki allar ákvarðanir fyrir fólkið og tímabært að færa valdið í miklu meira mæli til fólksins en verið hefur. Netið, alnetið, og mikill og almennur aðgangur að því býður upp á möguleika til að stórauka milliliðalaust lýðræði og gera það að veruleika án þeirra galla sem augljóslega fylgja tíðum atkvæðagreiðslum. Við þekkjum ýmis slík dæmi frá Sviss þar sem of tíðar atkvæðagreiðslur gera það að verkum að fólk verður leitt og nennir síður að ómaka sig á kjörstað og lýðræðið þynnist út og fólk hættir að sinna þessu mikilvæga hlutverki sínu.
Kosningar á netinu í kjölfar upplýsinga- og tæknibyltinganna eru að verða að veruleika og brýnt að kanna þegar í stað kosti þeirra og galla. Tímabært er að stíga skrefið frá Aþenu til alnetsins ef svo má segja, herra forseti, við lýðræðislega stjórnarhætti og færa völdin til fólksins. Fulltrúalýðræðið hefur að mörgu leyti gengið sér til húðar þó því fari fjarri að hægt sé að leggja það af. Ekki er hægt að taka upp stjórnskipan sem byggist ekki á fulltrúalýðræðinu og hinn almenni borgari getur ekki tekið þennan þátt í störfum Alþingis og fulltrúalýðræðisins í sínar hendur í almennum atkvæðagreiðslum. Kjörnir stjórnmálamenn munu eftir sem áður semja lögin og útfæra.
Í raun er kominn tími til að lýðræðið leiti upprunans, en í stað handauppréttinganna á Agora-torginu forðum á gullöld Grikkja rétta menn nú upp hönd á netinu þess í stað. Fulltrúalýðræði hins illa upplýsta og fátæka almennings hefur runnið sitt skeið á enda og næsta framfaraskeið mannkyns þarf að eiga sér stað á stjórnmálasviðinu með milliliðalausu lýðræði og notkun netsins við að koma því á, gera það ódýrara og auðveldara í framkvæmd. Því er brýnt að kanna áhrif þess á samfélagsþróunina að taka upp og efla beint lýðræði nú í kjölfar upplýsingabyltingarinnar þegar tölvueign og tölvuaðgengi almennings hefur aukist um þúsundir prósentna á örfáum árum.
Herra forseti. Hlutverk og tilgangur þessarar tillögu er að þróa lýðræðið áfram í ljósi aukinnar menntunar og betri aðgangs að upplýsingum sem leiðir til þess að hinn almenni borgari getur nú tekið ákvarðanir í formi beins lýðræðis um mörg meginmál samfélagsins. Það er fjarstæðukennt að ætla að 21. öldin sætti sig við óbreytt fulltrúalýðræði og þeim hverfandi áhrifum sem kjósendur hafa á stjórn samfélagsins í gegnum það fyrirkomulag. Þess mun verða krafist að bilið á milli þeirra sem stjórna og er stjórnað minnki verulega. Við notkun og innleiðingu netsins í lýðræðisferli okkar er einnig komið á samræðu borgaranna við stjórnvöld, þar sem borgarar landsins geta lagt inn hugmyndir og verið virkir þátttakendur í stjórn lands síns. Með þeim hætti eflist og styrkist stjórnmálasamræða í millum borgaranna um kjör sín, eins og að mörgu leyti hefur nú þegar átt sér stað með tilkomu netsins hin allra síðari ár.
Herra forseti. Líkt og fram kemur í grein Karls Blöndals, aðstoðarritstjóra Morgunblaðsins, í Morgunblaðinu þann 16. mars árið 2000 gerðu bandarískir demókratar merka tilraun með lýðræði á netinu í prófkjöri sem viðhaft var í Arizona í mars árið 2000. Var það í fyrsta sinn sem gerð var tilraun með lagabindandi kosningu með þeim hætti í Bandaríkjunum. Ásamt netatkvæðinu var hægt að kjósa með því að mæta á kjörstað eða senda atkvæði sitt í pósti. Tilraunin tókst vonum framar og miklum mun fleiri tóku þátt í prófkjörinu en í fyrri prófkjörum flokksins í því sama fylki áratuginn á undan. Þátttaka jókst stórum og tilgangnum var náð. Skráðum kjósendum var útdeilt kennitölu og síðan þurftu þeir að skrá inn upplýsingar af tvenns konar skilríkjum til að geta greitt atkvæði á netinu, segir Karl í grein sinni. Atkvæðagreiðslan tók um það bil tvær mínútur í framkvæmd og kjósendur þurftu ekki að ómaka sig á kjörstað nema þeir sem svo kusu að gera eða gátu ekki eða vildu ekki kjósa á netinu. Þeim stóð til boða að greiða atkvæði með hefðbundnum hætti, eins og áður sagði. Kosning á netinu dregur jafnframt stórum úr því umfangi og mikla kostnaði sem fylgir stórum atkvæðagreiðslum, hvort sem er á sveitarstjórnarstiginu eða fyrir þjóðina alla.
Það fyrirkomulag sem viðgengist hefur síðustu tvær aldirnar í formi fulltrúalýðræðisins hefur að mörgu leyti gengið sér til húðar. Það er löngu tímabært að kanna nýjar leiðir til að íbúar geti haft bein og milliliðalaus áhrif á stjórn samfélagsins. Heimurinn hefur gjörbreyst frá þeim tíma þegar verjandi var að óskir fólksins þyrftu að fara í gegnum fulltrúa þess að einu eða öllu leyti, fulltrúa sem höfðu tíma og aðstæður til að sinna mikilvægum ákvarðanatökum en almenningur alls ekki á þeim tíma. Nú hefur þorri almennings aðstæður og upplýsingar til að taka sjálfur allar stærri ákvarðanir um hagi sína og líf.
Herra forseti. Milliliðalaust lýðræði í gegnum netið þar sem fólkið tekur í æ meira mæli ákvarðanir sjálft er sú framþróun sem þarf og mun eiga sér stað í stjórnmálalífinu, þá í formi þjóðaratkvæðagreiðslna þar sem ákveðinn hluti atkvæðisbærra borgara getur krafist þess að ákveðin mál verði tekin til atkvæða af þegnum þjóðarinnar eða íbúum einstakra sveitarfélaga, sérstaklega með tilliti til þeirra auknu verkefna sem sveitarfélögunum hefur verið falið. Einnig ber að skoða sérstaklega hvernig notkun netsins getur og hefur þegar gjörbreytt starfsemi og eðli stjórnmálaflokka og þátttöku félaga þeirra í starfseminni, í gegnum netið og tölvupóstlista og hina ýmsu umræðuhópa sem starfræktir eru á netinu og fólk skráir sig sérstaklega í. Þetta er umbylting á möguleikum til öflugrar og skapandi stjórnmálaumræðu innan flokka. Með þessum hætti styrkir netið stjórnmálastarf og stjórnmálaflokka í stað þess að veikja, eins og vikið verður að síðar.
Hættan er sú að tíðar atkvæðagreiðslur valdi því að fólk verði leitt og þreytt á því að taka þátt í þeim og nenni ekki að fara á kjörstað oft eða nokkrum sinnum á ári. Lausnin á þeim vanda og fram hjá þeirri hættu er lýðræði á netinu. Við þróun og notkun netsins við atkvæðagreiðslur er brýnt að gæta fyllsta öryggis við persónuvernd og kanna þarf sérstaklega og til hlítar allar leiðir til að tryggja öfluga persónuvernd í rafrænum kosningum á netinu. Gæta skal þess að áfram verði viðhafðar hefðbundnar atkvæðagreiðslur til hliðar við netkosningar til að tryggja að fólk sem sökum fátæktar, elli eða annarra aðstæðna getur ekki nýtt sér netið eða kýs að gera það ekki, hafi fulla aðkomu að kosningunum. Stefna skal að því að allar þjóðaratkvæðagreiðslur fari fram á netinu samhliða hefðbundnum kosningum eða póstkosningum og síðar meir kosningar til Alþingis og sveitarstjórna.
Mesta áhyggjuefnið við þróun og upptöku milliliðalauss lýðræðis er hvernig minnihlutahópum reiðir af við beint lýðræði eða kosningar á netinu. Tryggja þarf að engir hópar verði útundan í þessari þróun enda er tilgangurinn að gera fólk að betri og ábyrgari borgurum við stjórn sinna samfélaga. Tölur sýna að þátttaka fólks sem er fátækt og lítið menntað er minni en annarra í þjóðaratkvæðagreiðslum almennt og þetta sanna sérstaklega dæmi frá Sviss og Bandaríkjunum þar sem tíðar þjóðaratkvæðagreiðslur eru stundaðar í mörgum fylkjum. Skoða þarf sérstaklega hvernig tryggja má að kjör og aðgengi tiltekinna minnihlutahópa að samfélaginu og ákvarðanatöku innan þess versni ekki í milliliðalausu lýðræði, heldur batni frá því sem nú er.
Meginviðfangsefni stjórnmálastarfsins er að komast að því hvaða lausnir flestir telja bestar og séu til mestra hagsbóta fyrir samfélagið. Einfaldast er að spyrja fólkið beint í stað þess að fela það nokkrum fulltrúum þess sem fólk kýs á fjögurra ára fresti eða þaðan af lengri tíma. Beint lýðræði upprætir einnig óhófleg áhrif fjársterkra og háværra hagsmunaafla sem oft hafa mikil áhrif á kjörna fulltrúa stjórnmálaflokkanna, ekki síst þegar litið er til Íslands þar sem bókhald flokkanna er lokað og fjárreiður þeirra leyndarmál. Í því efni vísum við flutningsmenn þessarar þáltill. í frv. hv. þm. Jóhönnu Sigurðardóttur um fjárreiður flokkanna. Miklu erfiðara er að hafa áhrif á kosningu heillar þjóðar enda erfitt að múta þjóð og erlendar rannsóknir frá Bandaríkjunum og Sviss sýna fram á að fjársterk hagsmunasamtök mega sín mun minna í þjóðaratkvæðagreiðslum en í beinum áhrifum á kjörna fulltrúa. Fjölmiðlar og borgarar landsins eiga skýlausa kröfu á að vita hvaða stórfyrirtæki hafa styrkt flokkana og sjá þannig svart á hvítu hver ítök þeirra eru í viðkomandi flokki.
Leynd og pukur með fjármál flokkanna grafa undan tiltrú almennings á stjórnmálum og stjórnmálamönnum og þar með lýðræðinu. Það er ekki hægt að byggja upp öflugt samfélag nema við búum við öflugt lýðræði.
Ákveðin skilyrði þarf að setja um umfang mála sem borin eru undir þjóðina og fjölda þeirra á ári. Brýnt er að ofgera ekki þjóðinni með of tíðum atkvæðagreiðslum. Notkun netsins slær hins vegar á hættuna á því að fólk hætti að ómaka sig á kjörstað eða sinna milliliðalausu lýðræði.
Með leyfi hæstv. forseta langar mig að vitna til orða Jóns Baldvins Hannibalssonar, sendiherra og fyrrv. hv. alþm., sem fram komu í Morgunblaðinu 25. maí 1997:
,,Íslendingar ættu að geta hugsað sér að verða tilraunastofa í frekari þróun lýðræðislegra stjórnarhátta vegna lýðræðishefðar okkar, menntunarstigs og fámennis þjóðarinnar sem ætti að auðvelda að láta tilraunina heppnast.
Lýðræði okkar er í grundvallaratriðum vanburðugt og ófullkomið vegna þess að við höfum aldrei í lýðveldissögunni notið þeirra grundvallarmannréttinda sem felast í jöfnum atkvæðisrétti, einn maður eitt atkvæði, né heldur notið þess að geta ráðið persónuvali í kosningum.
Af þessum sökum er vafalaust kominn tími til að endurmeta reynsluna og hugsa stærra. Hugmyndir um ... beina þátttöku almennings, með minna vægi fulltrúalýðræðis, eru fyllilega tímabærar og mjög áhugaverðar.
Tilgangurinn væri auðvitað að auka ábyrgð og sjálfsaga kjósenda, þeir yrðu að taka beina ábyrgð á afleiðingum gerða sinna með slíku vali. Það væri verið að styrkja þá stoð lýðræðisins sem byggist ekki aðeins á réttindum heldur líka á skyldum.``
Um leið og við eflum beint lýðræði er nauðsynlegt að jafna atkvæðaréttinn til fulls og gera Ísland allt að einu kjördæmi. Fyrir því eru engin rök að atkvæði allra Íslendinga séu ekki jafngild. Misjafnt vægi atkvæða er ekkert annað en skýlaust mannréttindabrot og svartur blettur á stjórnmálum landsins. Jafn atkvæðisréttur er þó fyrst og fremst spurning um mannréttindi og með því að gera landið að einu kjördæmi væri tryggt að allir í landinu hefðu nákvæmlega sömu möguleika til að hafa áhrif á stjórn landsins, því öll atkvæði væru jafnþung.
Stefna ætti að því um leið og stigin eru fyrstu skref í átt til milliliðalauss lýðræðis að atkvæðavægi allra Íslendinga verði jafnt og landið gert að einu kjördæmi.
Herra forseti. Milliliðalaust og beint lýðræði hefur það vissulega í för með sér að það veikir stjórnmálaflokkana sem lýðræðislega kjölfestu í stjórnmálum en styrkir þá með öðrum hætti, eins og ég kom inn á fyrr. Hins vegar hefur það á margan hátt átt sér stað nú þegar að stjórnmálaflokkarnir séu ekki þær kjölfestur í stjórnmálalífi okkar sem þeir áður voru. Með hruni alræðisríkjanna í austri fyrir áratug hefur vægi hinnar hugmyndafræðilegu baráttu sem skipaði fólki í tvær hatrammar fylkingar, gráar fyrir pólitískum járnum, minnkað verulega þó að átök hugmyndafræðinnar séu að sjálfsögðu enn við lýði og verði alltaf þegar menn takast á um hlutverk ríkisvaldsins, skattheimtu og forgangsröðun verkefna hins opinbera svo dæmi séu nefnd. Á móti kemur að með endalokum átakanna miklu á milli pólanna tveggja sem tókust á í kalda stríðinu skapast jarðvegur fyrir heilbrigða stjórnmálaumræðu og þar af leiðandi fyrir milliliðalaust lýðræði, líkt og segir í þeirri máttugu úttekt sem breska tímaritið Economist gerði fyrir fimm árum og Morgunblaðið birti í aukablaði í maí árið 1997, með leyfi forseta:
,,En þetta eru smáatriði borið saman við þá hávaðasömu bardaga, sem sósíalisminn og einstaklingshyggjan, markaðshagkerfið og miðstýringin háðu forðum.``
Herra forseti. Hvað er lýðræði? Ef við skilgreinum lýðræði sem hugmyndina um að fólkið skuli ráða þá er milliliðalaust lýðræði nær upprunanum en það lýðræðisfyrirkomulag sem tíðkast hefur víðast hvar og felur í sér kosningar til löggjafar- og eða framkvæmdarvalds á nokkurra ára fresti. Til að taka nýlegt íslenskt dæmi um raunverulegt lýðræði eða tilraun til þess má nefna atkvæðagreiðsluna sem átti sér stað í Reykjavík fyrir nokkrum mánuðum síðan um framtíðarstað flugvallarins í Vatnsmýrinni. Sú atkvæðagreiðsla var merkileg tilraun í milliliðalausu lýðræði og líklegt er að hún gefi tóninn fyrir innleiðingu beins lýðræðis á sveitarstjórnarstiginu þar sem það á best við og líklegast er til að taka út sinn þroska sem lýðræðisform 21. aldarinnar og framtíðar.
Herra forseti. Tæknin hefur breytt eðli og inntaki lýðræðisins, líkt og herra Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, sagði svo eftirminnilega í ræðu við setningu Alþingis í október árið 2000. Nú er einstaklingurinn hjá jafn vel upplýstri þjóð og Íslendingar eru þess umkominn að veita álit sitt og umsögn nánast hvenær sem er í krafti þekkingar sinnar og hæfni. Menntabyltingin og aðgengi að upplýsingum gera þetta að veruleika og eiga að fleyta okkur frá fulltrúalýðræði síðustu alda til milliliðalausrar þátttöku borgaranna sjálfra við stjórn samfélaga sinna.
Herra forseti. Ég legg til að tillögu þessari verði vísað til allshn.