Kolbrún Halldórsdóttir (andsvar):
Herra forseti. Hér er ekki kannski staður til þess að ræða á þessum nótum við hv. þm. Össur Skarphéðinsson en ég þakka honum fyrir að leggja okkur lið í að auglýsa landsfund Vinstri hreyfingarinnar -- græns framboðs (Gripið fram í: Hvar verður hann?) sem hefst, eins og hv. þm. gat um, á morgun og stendur um helgina. Hann er öllum opinn sem vilja hlýða á hugmyndir og hugsjónir þess flokks, sem ganga ekki hvað síst út á umhverfismál, þar sem einmitt hefur verið barist fyrir því að gerðar séu langtímaáætlanir um mál, þar sem barist er fyrir því að rammaáætlun ríkisstjórnarinnar um nýtingu og verndun vatnsafls og jarðvarma sé gert það hátt undir höfði að hægt sé að segja að vinnan sem í þá rammaáætlun hefur farið verði þess virði og að sú rammaáætlun verði til þess sem til var ætlast.
Ég veit líka að hv. þm. Ólöfu Guðnýju Valdimarsdóttur er vel kunnugt um að áætlanir af þessu tagi eru mikilvægar og mikilvægt tæki í stjórnsýslunni, því hún hefur á sínum vettvangi komið að rammaáætlun um nýtingu vatnsafls og jarðvarma. Ég vil nefna áætlanir á borð við vegáætlun og hafnaáætlun og fleiri áætlanir sem við fjöllum um á Alþingi. Það skiptir verulegu máli að þær séu gerðar af framsýni og af skynsemi og það þarf alla alþingismenn til að taka þátt í umræðunni um slíkar áætlanir. Það þarf breiða samstöðu um slíkt og þá skiptir máli að faglega sé staðið að verki, að faglega sé haldið á málum. Ég treysti því og ég finn það á greinargerðinni sem fylgir tillögunni sem hér er til umfjöllunar að krafa er gerð um að faglega sé að verki staðið og þegar öllu er á botninn hvolft skiptir mestu máli að faglega sé að verki staðið og að áætlanir séu gerðar af framsýni og þeim síðan fylgt.