2001-10-30 13:48:06# 127. lþ. 16.91 fundur 81#B skerðing á starfsemi tæknifrjóvgunardeildar Landspítala -- háskólasjúkrahúss# (aths. um störf þingsins), heilbrrh.
[prenta uppsett í dálka] 16. fundur, 127. lþ.

[13:48]

Heilbrigðisráðherra (Jón Kristjánsson):

Herra forseti. Ég þakka góð orð í minn garð. Hins vegar var eitt atriði sem ég hef kannski ekki verið nógu skýrmæltur um áðan. Viðræður um þjónustusamning miða að því að tæknifrjóvgunardeildin verði áfram í sínu umhverfi á spítalanum og njóti stoðdeilda hans. Það eru möguleikar til þess að gera þjónustusamning þó að þessi starfsemi verði þarna inni áfram og viðræðurnar munu miða að því. Við annað tækifæri er síðan hægt að taka upp umræður um þjónustusamninga almennt þótt ég ætli ekki að gera það á þessu stigi. Ég vildi aðeins að þetta kæmi fram við þessa umræðu.