Ráðstefna um loftslagsbreytingar

Þriðjudaginn 30. október 2001, kl. 13:58:06 (834)

2001-10-30 13:58:06# 127. lþ. 16.95 fundur 85#B ráðstefna um loftslagsbreytingar# (aths. um störf þingsins), Forseti HBl
[prenta uppsett í dálka] 16. fundur, 127. lþ.

[13:58]

Forseti (Halldór Blöndal):

Að gefnu tilefni af þessum umræðum vil ég ítreka það sem ég áður sagði að það eru einstakar nefndir þingsins sem eiga að taka afstöðu til þess hvort þær telji ástæðu til að óska eftir fjárveitingum til þess að taka þátt í ráðstefnum erlendis eða öðru alþjóðlegu samstarfi. Beiðni um slíkt á ekki að berast frá framkvæmdarvaldinu eða einstökum ráðuneytum. Þetta mál sem hér er um að ræða barst til forsn. frá umhvrn. og var að sjálfsögðu svarað sem slíku.