Náttúruvernd

Fimmtudaginn 01. nóvember 2001, kl. 11:48:11 (981)

2001-11-01 11:48:11# 127. lþ. 19.1 fundur 159. mál: #A náttúruvernd# (Náttúruverndarráð o.fl.) frv., 160. mál: #A umhverfismengun af völdum einnota umbúða fyrir drykkjarvörur# (gjald til Náttúruverndarráðs) frv., ÞSveinb (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 19. fundur, 127. lþ.

[11:48]

Þórunn Sveinbjarnardóttir (andsvar):

Hæstv. forseti. Vissulega koma frv. fram þegar komið hefur fram einhvers konar gagnrýni á gildandi löggjöf. En ég hefði nú haldið að aðalástæða þess að menn kæmu hér fram með frv. til laga væri að að baki þeim frv. byggi vel ígrunduð yfirveguð pólitísk stefnumótun, hún bæri henni vitni en væri ekki viðbragðapólitík eins og hér er á ferðinni.