Ummæli sjávarútvegsráðherra á aðalfundi LÍÚ, ræðutími o.fl.

Föstudaginn 02. nóvember 2001, kl. 11:06:26 (1075)

2001-11-02 11:06:26# 127. lþ. 20.94 fundur 100#B ummæli sjávarútvegsráðherra á aðalfundi LÍÚ, ræðutími o.fl.# (um fundarstjórn), ÁSJ (ber af sér sakir)
[prenta uppsett í dálka] 20. fundur, 127. lþ.

[11:06]

Árni Steinar Jóhannsson:

Virðulegi forseti. Ég vil bara lýsa því yfir að ég fór inn í þetta nefndarstarf fyrir minn flokk til þess að leita sátta. Ég vil lýsa því aftur yfir að ég tel, eftir á að hyggja, að búið hafi verið að búa niðurstöðuna til fyrir fram. Ég tel að svo sé.

Á síðustu metrum vinnunnar tel ég líka að það hafi verið möguleiki til sátta, bara hafa aðra nefndarmenn, en það var kippt í taumana.