Sjávarútvegsráðherra (Árni M. Mathiesen) (andsvar):
Herra forseti. Ég tiltók það alveg sérstaklega í ræðunni að aflamarksbátarnir yrðu fyrir áhrifum vegna þeirra breytinga sem boðaðar væru í frv. til þess að liðka fyrir hjá krókaaflamarksbátunum. En forsendur frv. og þeirra aðgerða sem verið er að leggja út í eru fyrirsjáanlegar breytingar hjá krókabátunum --- að þeir eru komnir í krókaaflamarkið frá því að vera að stórum hluta til í frjálsum veiðum.
Sú staða er ekki uppi hjá aflamarksbátunum. Þeir hafa nú um langan tíma verið í aflamarki, þeir hafa ekki verið í frjálsum veiðum og þar af leiðandi er ekki um að ræða neina aðlögun að breyttum aðstæðum eða verið að bæta mönnum það upp að þeir hafi minni möguleika til þess að sækja sjóinn eins og reyndin er með krókaaflamarksbátana sem hafa verið að stórum hluta í frjálsum veiðum, eins og ég sagði.